Watch live
| Time | Programme | Category |
|---|---|---|
| 00:00–00:30 |
Börnin í bekknum - tíu ár í grunnskólaEpisode 1/3
Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau. |
Börn |
| 00:30–00:31 | KrakkaRÚV | Börn |
| 00:31–00:33 |
Fílsi leikur sérEpisode 10/10
Ný sería um hinn skemmtilega Fílsa. Í þessari seríu fer Fílsi í kunnuglega barnaleiki og syngur skemmtileg lög með þér! |
|
| 00:33–00:38 |
Molang IVEpisode 10/52
Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu. |
|
| 00:38–01:00 |
Múmínálfarnir IIEpisode 7/13
Ástsælu Múmínálfar Tove Jansson snúa aftur og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum. |
|
| 01:00–01:07 |
Blæja IIIEpisode 11/12
Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut. |
|
| 01:07–01:15 |
Jasmín & JómbiEpisode 16/26
Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ. |
Börn |
| 01:15–01:20 |
Rán - RúnEpisode 43/52
Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir. |
Börn |
| 01:20–01:25 |
Krakkafréttir (með táknmálstúlkun)Episode 125/162
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson. |
|
| 01:25–01:50 |
Stúdíó RÚVEpisode 3/5
Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarmenn koma í stutt viðtöl og flytja tónlist. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson. Fram koma Soffía, Inspector Spacetime, Spacestation , Kári Egils og Gosi. |
|
| 01:50–02:00 |
Lag dagsinsEpisode 50/163
Íslensk tónlistarmyndbönd. |
Menning |
| 02:00–02:30 |
FréttirEpisode 209/270
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring. |
Fréttaefni |
| 02:30–02:35 |
ÍþróttirEpisode 198/260
Íþróttafréttir. |
Íþróttir |
| 02:35–02:45 |
VeðurEpisode 281/367
Veðurfréttir. |
Fréttaefni |
| 02:45–03:15 |
KastljósEpisode 36/200
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir. |
|
| 03:15–04:30 |
Við felldum múranaEpisode 1/1
Afmælisþáttur í tilefni af fimmtíu ára afmæli Landssamtakanna Þroskahjálpar. Gestgjafar úr hópi fólks með fötlun halda upp á tímamótin með fjölskyldu og framámönnum. Þau skemmta áhorfendum með söng og hljóðfæraslætti og fagna þeim sigrum og umskiptum sem orðið hafa í lífi fólks með þroskahömlun frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar. |
|
| 04:30–04:45 |
Kvenlegt yfirbragð IIEpisode 5/6
Finnlandssænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð. Hvaða áhrif hafa fegurðarstaðlar á sjálfsmynd okkar og hvernig finnst konum að eldast? Rýnt er í mæðgnasambönd og hvað erfist á milli kynslóða. |
|
| 04:45–05:35 |
Ljósið: Lygn vötnEpisode 5/6
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. |
|
| 05:35–06:15 |
Ófærð IIIEpisode 5/8
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. Spennan magnast upp innan vélhjólagengisins eftir að grunur vaknar um að á meðal þeirra leynist uppljóstrari. |
Leiknir þættir |
| 06:15–07:15 |
Nýtt líf fyrir tíu pundEpisode 2/6
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. |
|
| 07:15–20:00 | <original-title /> <description /> <short-description /> <rating /> <episode number="1" number-of-episodes="1" multiple-episodes="no" /> <offair>yes</offair> <header>no</header> <subevent>no</subevent> <live>no</live> <rerun>no</rerun> <aspect-ratio> <size>16:9</size> <anamorphic>yes</anamorphic> <letterbox>no</letterbox> </aspect-ratio> <reference group="" material="5462064" title="" /> | |
| 20:00–20:30 |
Fréttir (með táknmálstúlkun)Episode 209/377
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring. |
Fréttaefni |
| 20:30–20:40 |
HeimaleikfimiEpisode 10/20
Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni. Almennar æfingar. Bæði sitjandi og standandi. |
Fræðsla |
| 20:40–21:05 |
KastljósEpisode 36/200
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir. |
|
| 21:05–22:05 |
Gettu betur 1999Episode 2/7
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason. Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Kópavogi og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans í Kópavogi skipa Örlygur Axelsson, Reynir Bjarni Egilsson og Matthías Birgir Nardeau. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Inga Þóra Ingvarsdóttir, Fjalar Hauksson og Jón Árni Helgason. |
Gullkistan |
| 22:05–22:30 |
Göngum saman - brjóstanna vegnaEpisode 1/1
Íslensk heimildarmynd frá árinu 2012. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein hjá konum á Vesturlöndum og ein af hverjum tíu getur búist við því að greinast með þetta mein einhvern tíma á lífsleiðinni. Þótt miklar framfarir hafi orðið í meðhöndlun brjóstakrabbameins á undanförnum árum hafa læknavísindin enn ekki öðlast fullan skilning á orsökum þess og útbreiðslu til annarra líffæra. Í myndinni segir frá samtökunum Göngum saman, sem stofnuð voru árið 2007 til þess að styðja íslenskt vísindafólk við grunnrannsóknir sem miðast að því að skilja betur uppruna og eðli brjóstakrabbameins. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson. Framleiðandi Epos ehf. fyrir Göngum saman. |
Heimildarmyndir |
| 22:30–23:15 |
Manstu gamla daga?Episode 8/16
Þáttaröð frá 1991 um sögu íslenskrar dægurtónlistar. Umsjón: Helgi Pétursson og Jónatan Garðarsson. Dagskrárgerð: Tage Ammendrup. |
Menning |
| 23:15–23:50 |
BrjóstameinEpisode 1/1
Heimildarmynd frá 2023 um brjóstakrabbamein á Íslandi. Rætt er við lækna og fólk sem hefur glímt við sjúkdóminn um greiningu hans og meðferð. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal kvenna hér á landi. Framleiðandi er Epos kvikmyndagerð fyrir Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við brjóstamiðstöð Landspítala. |
Heimildarmyndir |
| 23:50–00:30 |
EyðibýliEpisode 4/6
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson. |
Fræðsla |
English
简体中文
ภาษาไทย